Hrafnhildur Sigurðardóttir stofnaði verslunina Hjá Hrafnhildi árið 1992 er hún flutti heim til Íslands með fjölskyldu sinni eftir langvarandi dvöl erlendis. Stofnun búðarinnar var gamall draumur Hrafnhildar og lagði hún mikinn metnað í að finna fallegan og vandaðan tískufatnað fyrir viðskiptavini sína. Hrafnhildur hafði haft gott tækifæri til að fylgjast með straumum og stefnum í kvenfatnaði í nágrannalöndum okkar, einkum í Þýskalandi.
Fyrstu árin var verslunin rekin á heimili Hrafnhildar í Fossvoginum í Reykjavík en árið 1996 flutti starfsemin í mun hentugra húsnæði við Engjateig 5 og árið 2000 var verslunin stækkuð og er nú á allri jarðhæðinni. Vöruúrvalið hefur aukist um leið og auk þess að bjóða upp á gott úrval af kvenfatnaði fyrir öll tækifæri bjóðum við nú upp á ýmsa fylgihluti, skart og töskur.
Hrafnhildur féll skyndilega frá árið 2002, aðeins fimmtug að aldri. Verslunin hefur áfram verið rekin í hennar anda af fjölskyldunni og hefur verið lögð rík áhersla á að halda vel á lofti því merki sem Hrafnhildur reisti í upphafi og veita jafn persónulega og góða þjónustu og Hrafnhildur hafði skapað sér svo gott orð fyrir.
