Hjá Hrafnhildi hefur frá upphafi lagt áherslu á vandaðan tískufatnað einkum frá Þýskalandi og Danmörku. Við leggjum okkur fram við að bjóða upp á föt við allra hæfi, óháð stærð og aldri og fyrir öll tækifæri. Meðal þeirra merkja sem notið hafa hvað mestra vinsælda má nefna:
ÞJÓNUSTAN
Framúrskarandi þjónusta er okkar aðalsmerki og leggjum við áherslu á að veita persónulega og góða þjónustu í anda Hrafnhildar Sigurðardóttur stofnanda verslunarinnar. Starfsfólk okkar hefur flest starfað í versluninni í fjölda ára og hefur mikla reynslu í að hjálpa konum að finna þau föt sem klæða þær best. Við eigum mikið af góðum viðskiptavinum á landsbyggðinni og sendum við í póstkröfu út um allt land.

